Úff, þá erum við komin aftur heim í Gnoðarvoginn eftir aldeilis
viðburðarríka helgi! Skruppum sumsé upp í Borgarfjörð í
sparisjóðsbústaðinn á laugardaginn og ætluðum að vera þar út þessa
viku. Grétar ætlaði að háþrýstiþvo bústaðinn fyrir
fyrirhugað málerí þar og svo ætluðum við bara að liggja í leti
og soðna í fína pottinum sem er á pallinum...jú og grilla á nýja
grillinu sem er þarna.
Komum seinnipart á laugardaginn þangað og um leið og við rennum
í hlað, spyr ég Grétar hvort að hann hafi tekið
kjúklingabringurnar, hamborgarana, humarinn...úr frysti! Ö,
nei, gerðir þú það ekki heldur?
Frábært!!! Góð
byrjun á ferðinni...gleymdum öllum matnum heima.
Næsta morgun vöknum við með sólina í augunum, frábært veður og
fínasti hiti á pallinum. Ég sé að áin er algjörlega vatnslaus
og varð auðvitað að kanna það nánar, því ekki er langt síðan við
vorum þarna uppfrá og Auðunn Gunnar tók veðmáli við bræður sína um
að sitja í kafi í ískaldri ánni í eina mínútu! Allavega,
ég fer þarna út á hraunið (sem yfirleitt er undir vatni) og stend
þarna að skoða, svo kallar Grétar á mig og ég ætla að stíga niður
af einni syllu á aðra, misstíg ég mig svo hrikalega að það smellur
í fætinum á mér og ég skell beint á hnén...þetta gerðist svo snöggt
að ég var ekki alveg viss um hvað hefði eiginlega gerst
Nema hvað að stingandi sársauki er í fætinum, og vill auðvitað svo
skemmtilega til að þetta er akkurat fóturinn sem ég var fótbrotin á
(ath ég fótbrotnaði ekki heldur var fótbrotin) 
Eftir smá stund tekst mér að standa upp og staulast upp á pall,
gat allavega stigið í fótinn svo að ég hafði greinilega ekki
brotið hann...sjúff
En við ákveðum nú samt að fara í
Borgarnes og láta kíkja á fótinn þar sem hann bólgnaði nú
svolítið upp og afþví að þetta var þessi fótur. Svo
þurftum við hvort sem er að fara í búð þar sem allur
maturinn varð eftir heima í frysti!!!
Það var tekin röntgen, og jú ekkert brot, en læknirinn hafði nú
samt áhyggjur af þessum tveimur nöglum sem eru enn þarna inni síðan
brotið í fætinum á mér var neglt saman...

...og svo var sett gifs!!! Frábært, þar með var
potturinn afskrifaður, og ekki nóg með það heldur á heilsugæslan í
Borgarnesi engar hækjur og því mátti ég hoppa um á "einari" þar til
ég fengi tíma hjá mínum heimilislækni sem átti á úrskurða um það
hvort að þessir naglar hefðu nokkuð hreyfst...og sá læknatími er á
morgun!
Það þarf ekki að spyrja að því að ég auðvitað úrskurðaði sjálfa
mig bara tognaða og reif sjálf af mér gifsið í gærkvöldi til
að komast í pottinn og er farin að stíga líka í fótinn þar sem ég
er komin með harðsperrur af öllu þessu hoppi!
Læt vita hvort að greining mín er röng og ef fóturinn verður
tekinn af mér á morgun þegar ég fer að hitta heimilislækninn!
Jæja þangað til næst...